Lögreglu- og sakamál. Kæruleið ekki tæmd.

(Mál nr. 449/2025)

A kvartaði yfir því að umsókn sonar hennar og fjölskyldu hans um alþjóðlega vernd hafi ekki verið samþykkt og brottvísun þeirra frá landinu. Þá laut kvörtunin að framkomu þeirra sem framkvæmdu brottvísunina.  

Í samskiptum A við umboðsmann kom fram að sonur hennar hyggðist sjálfur beina kvörtun til embættisins vegna ákvörðunar stjórnvalda í máli hans og fjölskyldunnar. Að því leyti sem kvörtunin laut að framkvæmd brottvísunarinnar taldi umboðsmaður rétt að fyrst yrði leitað til nefndar um eftirlit með lögreglu áður en kvörtun væri lögð fram hjá umboðsmanni. Með vísan til þess lét umboðsmaður meðferð málsins lokið að svo stöddu.

  

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 26. nóvember 2025.