A kvartaði yfir töfum á því að brugðist væri við erindi hans til dómsmálaráðuneytisins þrátt fyrir ítrekanir.
Í svari ráðuneytisins við fyrirspurn umboðsmanns var upplýst að erindinu hefði nú verið svarað. Með vísan til þess taldi umboðsmaður ekki tilefni til frekari athugunar á kvörtuninni.
Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 11. desember 2025.
Vísað er til kvörtunar þinnar 30. júlí sl. yfir því að dómsmálaráðuneytið hefði ekki enn brugðist við erindi þínu til þess 5. janúar 2022 þrátt fyrir ítrekanir. Í tilefni af kvörtuninni var dómsmálaráðuneytinu ritað bréf 11. ágúst sl. þar sem þess var óskað að upplýst yrði hvort erindin hefðu borist og, ef svo væri, hvort þeim hefði verið svarað. Hefði þeim ekki verið svarað, var þess óskað að upplýst yrði hvers vegna. Þá var óskað upplýsinga um hvað liði meðferð og afgreiðslu erindisins 5. janúar 2022.
Að undangengnum ítrekunum bárust svör dómsmálaráðuneytisins 3. desember sl. Þar kemur fram að erindi þínu hafi verið svarað 1. sama mánaðar auk þess sem velvirðingar var beðist á því að verulega hefði dregist að svara erindi umboðsmanns.
Þar sem kvörtun þín lýtur að því að ráðuneytið hafi ekki brugðist við erindi þínu og nú hefur ráðuneytið brugðist við tel ég ekki ástæðu til að aðhafast frekar í tilefni af henni. Lýk ég því meðferð minni á kvörtuninni með vísan til a-liðar 2. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis.