Kvartað var yfir fyrirkomulagi sorphirðu og álagningu gjalds fyrir hana hjá Reykjavíkurborg.
Þar sem úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hafði kæru vegna málsins til meðferðar taldi umboðsmaður sig ekki geta tekið kvörtunina til frekari meðferðar að svo stöddu.
Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 11. september 2025.
Vísað er til kvörtunar þinnar 22. júlí sl. sem beinist að Reykjavíkurborg og lýtur að fyrirkomulagi sorphirðu og álagningu gjalds fyrir hana.
Í tilefni af kvörtuninni skal tekið fram að ef skjóta má máli til æðra stjórnvalds er ekki unnt að kvarta til umboðsmanns fyrr en æðra stjórnvaldið hefur fellt úrskurð sinn í málinu, sbr. 3. mgr. 6. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis. Þetta lagaákvæði er einkum byggt á því sjónarmiði að stjórnvöld skuli fá tækifæri til að leiðrétta ákvarðanir, sem hugsanlega eru rangar, áður en leitað er til aðila utan stjórnkerfis þeirra, eins og umboðsmanns Alþingis, með kvörtun.
Ástæða þess að ég rek framangreint er að stjórnvaldsákvarðanir sem eru teknar á grundvelli laga nr. 55/2003, um meðhöndlun úrgangs, reglugerða settra samkvæmt þeim eða samþykkta sveitarfélaga sæta kæru til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, sbr. 67. gr. laganna. Af gögnum sem þú hefur lagt fram eftir að kvörtun þín barst er ljóst að nefndin hefur til meðferðar kæru þína á álagningu Reykjavíkurborgar á gjaldi vegna sorpíláta. Ég get því ekki tekið kvörtunina til frekari meðferðar fyrr en niðurstaða nefndarinnar liggur fyrir. Ef þú ert enn ósátt að fenginni úrlausn nefndarinnar er þér fært að leita til umboðsmanns á ný með kvörtun þar að lútandi.
Með vísan til þess sem að framan er rakið lýk ég umfjöllun minni um kvörtunina, sbr. 1. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis.