A kvartaði yfir töfum á afgreiðslu kærunefndar útlendingamála á kæru vegna synjunar Útlendingastofnunar á umsókn A um vegabréfsáritun til Íslands.
Að fengnum skýringum kærunefndarinnar varð ráðið að tafirnar væru almenns eðlis en ekki bundnar við mál A sérstaklega. Með hliðsjón af þessu, svo og með vísan til þeirrar stöðu sem uppi væri í málaflokknum, sem m.a. mætti rekja til mikillar fjölgunar kærumála síðastliðin ár, taldi umboðsmaður sig ekki hafa forsendur til að aðhafast frekar í málinu að svo stöddu.
Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 13. janúar 2026.
Vísað er til kvörtunar þinnar 26. nóvember sl. er lýtur að töfum á afgreiðslu kærunefndar útlendingamála á kæru sem lögð var fram 15. febrúar 2025 og upplýsingagjöf kærunefndarinnar um meðferð málsins. Lýtur kæran að synjun Útlendingastofnunar 11. febrúar 2025 á umsókn um vegabréfsáritun til Íslands.
Í tilefni kvörtunarinnar var kærunefndinni ritað bréf 9. desember sl. þar sem þess var óskað að upplýsingar yrðu veittar um hvað liði meðferð og afgreiðslu kærunnar auk þess sem upplýst yrði um viðbrögð við fyrirspurn þinni til nefndarinnar 11. ágúst 2025. Meðfylgjandi svar barst 22. desember 2025.
Af svörum kærunefndar útlendingamála og fyrirliggjandi gögnum verður ráðið að fyrirspurn þinni frá 11. ágúst 2025 hafi verið svarað með fullnægjandi hætti.
Af þeim upplýsingum og skýringum sem kærunefndin hefur veitt vegna málsins verður ráðið að tafir á afgreiðslu þess megi einkum rekja til þeirrar miklu fjölgunar á kærumálum sem nefndinni hefur borist síðastliðin ár vegna synjunar á vegabréfsáritunum, en samkvæmt upplýsingum nefndarinnar bárust tífalt fleiri kærur á árinu 2025 en árið 2023. Fram kemur í skýringum nefndarinnar að í desember 2025 hafi nefndin verið að úrskurða í kærum sem bárust í nóvember 2024. Í því skyni að vinna bug á þeim vanda sem uppi er í málaflokknum liggi fyrir Alþingi frumvarp til laga um vegabréfsáritanir, þar sem gert sé ráð fyrir því að utanríkisráðuneytið taki alfarið við málaflokknum og lagðar til aðgerðir sem meðal annars sé ætlað að stuðla að hraðari málsmeðferð. Verði frumvarpið ekki að lögum býst nefndin við því að kæra í máli þínu verði afgreidd um mitt ár 2026, nánar tiltekið á 2. eða 3. fjórðungi þess árs, en ekki sé hins vegar unnt að segja til um framvindu málsins taki utanríkisráðuneytið við meðferð þess.
Þótt dráttur hafi orðið á afgreiðslu málsins hjá kærunefnd útlendingamála og fyrirséð að enn muni nokkur tími líða þar til niðurstaða í því liggi fyrir tel ég mig, að framangreindu gættu, ekki hafa forsendur til að aðhafast frekar í málinu að svo stöddu, enda liggur ekki annað fyrir en að tafirnar séu almennar og ekki sérstaklega bundnar við mál þitt. Þá verður ráðið af svörum kærunefndar útlendingamála og fyrirliggjandi gögnum að fyrirspurn þinni til nefndarinnar 11. ágúst 2025 hafi þegar verið svarað með fullnægjandi hætti.
Ég tek fram að þú getur leitað til mín á ný með kvörtun standist fyrirætlanir kærunefndarinnar ekki í málinu, eða ef óhóflegur dráttur verður á meðferð málsins af hálfu utanríkisráðuneytisins, fari svo að fyrrgreint lagafrumvarp verði að lögum.
Að framangreindu virtu læt ég athugun minni á málinu lokið, sbr. a-lið 2. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997.