Opinberir starfsmenn. Starfslok. Ábending um að leita til dómstóla.

(Mál nr. 27/2026)

Kvartað var yfir starfslokum hjá X. 

Í ljósi fyrirliggjandi gagna taldi umboðsmaður að í málinu væri uppi ágreiningur um efni ráðningarsamnings og önnur málsatvik, þar á meðal munnleg samskipti, sem leiða þyrfti til lykta með sönnunarfærslu fyrir dómstólum. Að því sögðu lét umboðsmaður athugun sinni lokið.

  

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 22. janúar 2026.

  

   

Vísað er til kvörtunar þinnar 9. janúar sl., sem lýtur að starfslokum þínum hjá X. Af kvörtuninni verður ráðið að það sé afstaða þín að ranglega hafi verið staðið að starfslokunum af hálfu stofnunarinnar í ljósi þess að þú hafir verið ráðin ótímabundið til starfa hjá stofnuninni, ólíkt því sem stofnunin sjálf heldur fram.

Í tilefni kvörtunar þinnar skal tekið fram að samkvæmt 1. mgr. 2. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis, er hlutverk umboðsmanns að hafa í umboði Alþingis eftirlit með stjórnsýslu ríkis og sveitarfélaga á þann hátt sem nánar greinir í lögunum og tryggja rétt borgaranna gagnvart stjórnvöldum landsins. Skal umboðsmaður gæta þess að jafnræði sé í heiðri haft í stjórnsýslunni og að hún fari að öðru leyti fram í samræmi við lög og vandaða stjórnsýsluhætti. Af lögum nr. 85/1997 verður ráðið að þau eru meðal annars byggð á þeirri forsendu að fyrir hendi sé verkaskipting milli dómstóla og umboðsmanns og mál geti verið þannig vaxin að eðlilegra sé að leyst verði úr þeim fyrir dómstólum. Þannig kemur til dæmis fram í lögunum að starfssvið umboðsmanns taki ekki til ákvarðana og annarra athafna stjórnvalda þegar samkvæmt beinum lagafyrirmælum er ætlast til að menn leiti leiðréttingar með málskoti til dómstóla, sbr. c-lið 4. mgr. 3. gr. þeirra. Þá er tekið fram að varði kvörtun réttarágreining sem á undir dómstóla og eðlilegt er að þeir leysi úr geti umboðsmaður lokið máli með ábendingu um það, sbr. c-lið 2. mgr. 10. gr. laganna.

Með kvörtun þinni fylgdi afrit af ráðningarsamningi þínum við X, auk svara stofnunarinnar við athugasemdum sem komið var á framfæri við stofnunina af þinni hálfu í kjölfar þess að þér var gerð grein fyrir komandi starfslokum. Ljóst er af umræddum gögnum að þú skrifaðir undir ráðningarsamning til eins árs, það er með upphafsdegi [...], auk þess sem þar kemur skýrlega fram að um sé að ræða tímabundna ráðningu. Í svörum stofnunarinnar til þín er þá áréttað að þú hafir verið upplýst um það í símtali að um tímabundið starf væri að ræða.

Ég legg þann skilning í kvörtun þína að hún lúti fyrst og fremst að efni umrædds samnings og þess sem átti sér stað í aðdraganda þess að hann var gerður, þar á meðal munnlegum samskiptum. Í því ljósi og með hliðsjón af svörum X við erindum þínum vegna málsins tel ég ljóst að uppi sé ágreiningur um málsatvik þar sem nauðsynlegt kann að vera að afla sönnunargagna, svo sem vitnaskýrsla, og meta síðan sönnunargildi slíkra gagna. Umboðsmaður hefur talið rétt að fjalla almennt ekki um mál, sem eru slíku marki brennd, heldur verði það að vera hlutverk dómstóla, sem eru betur í stakk búnir til að leysa úr álitaefnum um hvað teljist sannað, og þá að því marki sem það kann að vera nauðsynlegt til að fá leyst úr dómkröfu sem borin er fram á þeim vettvangi. Ég tek fram að með þessu hef ég enga afstöðu tekið til þess hvort rétt sé að leggja málið fyrir dómstóla, kjósir þú að fylgja málinu frekar eftir með þeim hætti.

Með vísan til framangreinds lýk ég athugun minni á kvörtuninni, sbr. c-lið 2. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis.