Tafir hjá stjórnvaldi á afgreiðslu máls. Skýringar fengnar. Ekki ástæða til aðgerða.

(Mál nr. 577/2025)

Kvartað var yfir töfum á meðferð máls hjá kærunefnd jafnréttismála.

Í svari nefndarinnar í tilefni af fyrirspurn umboðsmanns kom fram að nefndin hefði verið án ritara um nokkurra mánaða skeið og bilun hafi verið í tölvukerfi hennar. Búið sé að ráða bót á þessu og málið það tólfta í röðinni hjá nefndinni. Í ljósi þessara skýringa og áforma nefndarinnar taldi umboðsmaður ekki ástæðu til að aðhafast frekar í tilefni af kvörtuninni.

  

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 30. janúar 2026.