Sveitarfélög. Ólögbundin verkefni sveitarfélaga. Endurgreiðsla oftekins fjár. Ábending um að leita til dómstóla.

(Mál nr. 12771/2024)

A leitaði til umboðsmanns Alþingis og kvartaði yfir ákvörðun sveitarstjórnar X um að synja honum um endurgreiðslu á mismuni þeirrar fjárhæðar sem honum var gert að greiða fyrir árskort í íþróttamiðstöð og sundlaug sveitarfélagsins og þeirrar sem íbúum með lögheimili í sveitarfélaginu var gert að greiða. Var beiðni hans tilkomin vegna álits innviðaráðuneytisins þar sem ráðuneytið hafði komist að þeirri niðurstöðu að gjaldskrá sveitarfélagsins hefði að þessu leyti ekki verið í samræmi við jafnræðis- og meðalhófsreglu stjórnsýsluréttar.

Umboðsmaður taldi sig ekki hafa forsendur til að leggja til grundvallar að ágreiningur um réttmæti kröfu A teldist til þeirrar stjórnsýslu sveitarfélaga sem ráðherra sveitarstjórnarmála hefði verið falið eftirlit með á grundvelli sveitarstjórnarlaga. Hún taldi því ekki efni til að gera athugasemdir við þá afstöðu innviðaráðuneytisins að aðhafast ekki vegna erindis A til ráðuneytisins.

Að því marki sem kvörtunin laut að afstöðu sveitartjórnar X vísaði umboðsmaður til þess að með kaupum A á árskortinu hefði komist á gildur samningur sem ekki hefði verið felldur úr gildi. Taldi umboðsmaður að væri það afstaða A að sá samningur væri ólögmætur að efni til, og að því marki sem krafa hans um endurgreiðslu yrði reist á reglum fjármunaréttar, að um væri að ræða réttarágreining sem eðlilegt væri að dómstólar leystu úr.

  

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 30. janúar 2026.