Sveitarfélög. Persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga. Málefni fatlaðs fólks. Kæruleið ekki tæmd.

(Mál nr. 102/2025)

A svf. leitaði til umboðsmanns Alþingis og kvartaði yfir kröfu um að félagið legði fram nánar tiltekin gögn og upplýsingar vegna ráðstöfunar á framlagi Reykjavíkurborgar til starfsmannakostnaðar A svf. í tengslum við umsýslu samninga.

Þar sem ekki varð séð að meðferð málsins væri lokið hjá borginni voru ekki uppfyllt skilyrði til þess að kvörtunin yrði tekin til frekari meðferðar að svo stöddu. 

  

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 30. janúar 2026.

  

  

Vísað er til kvörtunar A 4. mars 2025 sem beinist að Reykjavíkurborg og lýtur að kröfu borgarinnar 18. desember 2024 um að A leggi fram nánar tiltekin gögn og upplýsingar vegna ráðstöfunar á framlagi sveitarfélagsins til starfsmannakostnaðar hennar. Lýtur kvörtunin að því að gagna- og upplýsingabeiðnin hafi falið í sér breytingu á stjórnsýsluframkvæmd sem ekki hafi verið í samræmi við vandaða stjórnsýsluhætti. Þá liggur einnig fyrir að A  hefur leitað til Persónuverndar og óskað eftir áliti hennar á lögmæti kröfu Reykjavíkurborgar með tilliti til persónuverndar.

Í tilefni af kvörtuninni voru Reykjavíkurborg rituð bréf 11. nóvember 2025 og 9. janúar sl. þar sem þess var óskað að umboðsmanni yrðu veittar upplýsingar um stöðu málsins hjá sveitarfélaginu, þar á meðal hvort það væri þar enn til meðferðar og hvort einhverjar ákvarðanir lægju fyrir eða væru fyrirhugaðar í málinu. Þá var jafnframt óskað eftir upplýsingum um hvort beðið væri eftir niðurstöðu Persónuverndar áður en málinu yrði fylgt frekar eftir. Svör Reykjavíkurborgar bárust 24. nóvember 2025 og 21. janúar sl. og eru atvik málsins þar nánar rakin sem og samskipti hennar við Persónuvernd. Þar kemur meðal annars fram að málið sé enn til umfjöllunar hjá Persónuvernd og velferðarsvið Reykjavíkurborgar hyggist bíða eftir niðurstöðu stofnunarinnar.

Það leiðir af lögum nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis, að almennt er ekki gert ráð fyrir því að umboðsmaður fjalli um mál fyrr en það hefur verið endanlega til lykta leitt hjá stjórnvöldum, sbr. 3. mgr. 6. gr. laganna. Af svörum Reykjavíkurborgar verður ekki annað ráðið en að málið sé enn til meðferðar hjá sveitarfélaginu og beðið sé eftir niðurstöðu Persónuverndar áður en því verður fylgt frekar eftir. Þar sem ekki verður séð að meðferð málsins sé lokið eru ekki uppfyllt skilyrði til þess að kvörtunin verði tekin til frekari meðferðar að svo stöddu. Felli A sig ekki við endanlega niðurstöðu málsins, getur hún leitað til umboðsmanns á nýjan leik og verður þá tekin afstaða til þess hvort, og þá að hvaða marki, málið getur komið til athugunar af minni hálfu.

Með vísan til framangreinds læt ég athugun minni á kvörtuninni lokið, sbr. 1. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997.