A svf. leitaði til umboðsmanns Alþingis og kvartaði yfir kröfu um að félagið legði fram nánar tiltekin gögn og upplýsingar vegna ráðstöfunar á framlagi Reykjavíkurborgar til starfsmannakostnaðar A svf. í tengslum við umsýslu samninga.
Þar sem ekki varð séð að meðferð málsins væri lokið hjá borginni voru ekki uppfyllt skilyrði til þess að kvörtunin yrði tekin til frekari meðferðar að svo stöddu.
Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 30. janúar 2026.