Heilbrigðismál. COVID 19. Ekki ástæða til aðgerða.

(Mál nr. 580/2025 og 588/2025)

A kvartaði  yfir lyfjagjöf til ungbarna og villandi upplýsingagjafar sóttvarnarlæknis um bólusetningar vegna Covid-19.

Að virtum skilyrðum til að beina kvörtun til umboðsmanns, tók umboðsmaður eingöngu til athugunar afgreiðslu sóttvarnarlæknis og heilbrigðisráðuneytisins á erindi A er sneri að umræddri lyfjagjöf til ungbarna. Taldi umboðsmaður ekki annað séð en að brugðist hefði verið við erindum A á fullnægjandi hátt.

Þá taldi umboðsmaður ekki uppfyllt skilyrði til að fjalla um upplýsingagjöf landlæknis, þar sem afstaða landlæknis, og eftir atvikum heilbrigðisráðuneytisins, til umkvörtunarefnis A lá ekki fyrir.

  

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 30. janúar 2026.

  

    

I

Vísað er til kvörtunar þinnar 16. desember 2025, og tengdra erinda þ. á m. erinda 23., 27. og 31. sama mánaðar og 5. og 6. janúar sl., þar sem kvartað er yfir „alvarlegum stjórnsýslu- og réttarríkisálitaefnum sem varða almenna og skipulagða gjöf lyfsins Beyfortus til ungbarnahóps á Íslandi“. Er óskað eftir upplýsingum um á hvaða lagaheimild almenn gjöf lyfsins til ungbarna byggi, hvar liggi „sjálfstæð íslensk áhættugreining/greinargerð“ sem réttlæti slíka gjöf, á hvaða lagagrundvelli skráning á höfnun foreldra sé talin skylda og hvers vegna ekki hafi verið veitt sundurliðuð opinber greining á mögulegum tengslum lyfjagjafarinnar og alvarlegra veikinda hjá ungbörnum. Með tölvupósti 5. janúar sl. bárust umboðsmanni svör sóttvarnarlæknis og heilbrigðisráðuneytisins við spurningum sem beint var til þeirra og varða að hluta til fyrrgreind atriði. Verður ráðið að þú óskir eftir afstöðu umboðsmanns til lögmætis þeirrar lagatúlkunar sem stjórnvöld byggja á. Þá kemur fram í viðbótarerindi sem barst umboðsmanni sama dag að einnig sé farið fram á að umboðsmaður greini frá því hvort sú „stjórnsýsluframkvæmd sem viðhöfð hefur verið“ samrýmist sjónarmiðum í fyrirspurnarbréfi umboðsmanns til heilbrigðisráðherra 16. febrúar 2024 og hvort „áframhaldandi þögn stjórnvalda og skortur á gögnum sé samrýmalegur hlutverki umboðsmanns sem eftirlitsaðila með stjórnsýslunni“.

Einnig er vísað til erindis þíns 26. desember 2025 er beinist að upplýsingagjöf sóttarvarnalæknis í Morgunblaðinu 24. sama mánaðar en þú telur að almenningi hafi þar verið gefin villandi mynd af áhættu af bólusetningum vegna Covid-19. Þá hafa borist afrit af erindum þínum til Alþingis og Hæstaréttar Íslands 11. og 14. desember 2025 og til landlæknis, heilbrigðisráðuneytisins, ríkislögmanns og lögreglu 6., 9., 12., 13., 14. og 24. janúar 2026.

  

II

Í bréfum umboðsmanns til þín, 23. nóvember 2023, 14. maí 2025, svo og 19. júní og 31. júlí sama ár, í tilefni fyrri kvartana og erinda þinna, er gerð ítarleg grein fyrir starfssviði umboðsmanns og þeim skilyrðum sem þurfa að vera uppfyllt til þess að kvörtun verði tekin til nánari athugunar samkvæmt ákvæðum laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis. Í því efni er lögð sérstök áhersla á að almennt verður ekki kvartað til umboðsmanns nema kvörtunin snerti tiltekna ákvörðun, athöfn eða athafnaleysi stjórnvalds, sem beinist sérstaklega að þeim sem kvartar eða varðar beinlínis hagsmuni hans umfram aðra. Þannig er það ekki hlutverk umboðsmanns að láta fólki í té lögfræðilegar álitsgerðir eða svara almennum spurningum um tiltekin málefni.

Að framangreindu virtu og með hliðsjón af efni erinda þinna undanfarið er ekki á færi umboðsmanns að taka til athugunar og fjalla um aðra þætti þeirra en lúta að svari sóttvarnarlæknis 23. desember 2025, en til þess er jafnframt vísað í svari heilbrigðisráðuneytisins 5. janúar sl. við sömu fyrirspurn. Ég hef kynnt mér svörin og tel ekki ástæðu til að gera athugasemdir við afgreiðslu ráðuneytisins á erindum þinum, enda fæ ég ekki annað séð en að brugðist hafi verið þeim á fullnægjandi hátt.

Að öðru leyti árétta ég það sem fram kemur í fyrri bréfum umboðsmanns til þín um verksvið landlæknis, og sóttvarnarlæknis sem hjá því embætti starfar, svo og um yfirstjórnar- og eftirlitsheimildir heilbrigðisráðherra, og rétt er að leita til með fyrirspurnir um gjöf Beyfortus. Að þessu sögðu verður litið á umkvörtunarefni í erindum þínum sem ábendingar um atriði sem vert kann að vera fyrir umboðsmann að taka til skoðunar á grundvelli frumkvæðisheimildar í 5. gr. laga nr. 85/1997.

  

III

Hvað snertir erindi þitt 26. desember 2025, vegna upplýsingagjafar sóttvarnarlæknis, er ljóst að erindið var samhliða meðal annars sent heilbrigðisráðuneytinu og embætti landlæknis og liggur afstaða þeirra til kvörtunaratriðana ekki fyrir. Ég árétta í því sambandi það sem kemur fram í bréfi mínu 23. nóvember 2023, að stjórnvöld skulu fá tækifæri til að leiðrétta ákvarðanir, sem hugsanlega eru rangar, áður en leitað er til aðila utan stjórnkerfis þeirra með kvörtun, líkt og umboðsmanns Alþingis, sbr. 3. mgr. 6. gr. laga nr. 85/1997 um störf umboðsmanns.

Í ljósi framangreinds tel ég ekki rétt að fjalla um þennan þátt erindisins að svo stöddu. Teljir þú enn tilefni til að leita til umboðsmanns vegna kvörtunarefnisins að fenginni afstöðu embættis landlæknis, og eftir atvikum heilbrigðisráðuneytisins, áttu þess kost að leita til umboðsmanns að nýju með kvörtun þar að lútandi, og verður þá tekin afstaða til þess hvort og að hvaða marki málefnið getur komið til athugunar af hálfu umboðsmanns.

   

IV

Með vísan til framangreinds læt ég umfjöllun minni vegna kvörtunar þinnar lokið, sbr. 1. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997.