Opinberir starfsmenn. Ráðningar í opinber störf. Háskólar.

(Mál nr. 12853/2024)

A kvartaði yfir ákvörðun um ráðningu í starf lektors við tilgreinda deild Háskóla Íslands. Samandregið laut kvörtunin að því að auglýsing um starfið hefði verið sniðin að þeim manni, sem síðar var ráðinn, hæfasti umsækjandinn hefði ekki verið ráðinn auk athugasemda við málsmeðferð viðkomandi háskóla.  

Settur umboðsmaður taldi sig ekki hafa forsendur til að gera athugasemdir við það hvernig auglýsing um starfið var úr garði gerð. Þá taldi hann sig ekki hafa forsendur til að fullyrða um að samanburður og mat á umsækjendum hefði verið bersýnilega óforsvaranlegur. Að síðustu taldi settur umboðsmaður með vísan til skýringa háskólans að ekki væri tilefni til að fjalla um athugasemdir A við málsmeðferð við ráðninguna.  

   

Settur umboðsmaður lauk málinu með bréfi 4. febrúar 2026.