Kvartað var yfir töfum á afgreiðslu Sjúkratrygginga á umsókn um bætur úr sjúklingatryggingu vegna bólusetningar gegn Covid-19 sjúkdómnum.
Í svari stofnunarinnar í tilefni af fyrirspurn umboðsmanns kom meðal annars fram að málið væri komið til yfirtryggingalæknis og áætlað væri að ákvörðun lægi fyrir innan tveggja vikna frá dagsetningu bréfsins. Í ljósi skýringa stofnunarinnar að öðru leyti og áforma stofnunarinnar taldi umboðsmaður ekki ástæðu til að aðhafast frekar í tilefni af kvörtuninni.
Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 11. febrúar 2026.
Vísað er til kvörtunar A 9. janúar sl. yfir töfum á afgreiðslu Sjúkratrygginga á umsókn um bætur úr sjúklingatryggingu vegna bólusetningar gegn Covid-19 sjúkdómnum.
Í tilefni af kvörtuninni var Sjúkratryggingum ritað bréf 15. janúar sl. þar sem óskað var upplýsinga um hvað liði meðferð og afgreiðslu málsins. Í meðfylgjandi svari stofnunarinnar 29. janúar sl. kemur meðal annars fram að erfitt hafi reynst að fá lækna til þess að veita nauðsynlegt sérfræðiálit á málum vegna bólusetningar gegn Covid-19 og að tafir hafi orðið á yfirferð þess læknis sem fékkst svo til verksins. Þá hafi sá læknir sem hafi haft málið til yfirferðar sagt sig frá málinu og hygðist ekki taka að sér frekari mál fyrir stofnunina. Málið hafi í kjölfarið verið sent til yfirtryggingalæknis og miðað við stöðu málsins sé áætlað að ákvörðun um bótaskyldu muni liggja fyrir innan tveggja vikna.
Þar sem kvörtunin lýtur að töfum á afgreiðslu málsins, og í ljósi áforma Sjúkratrygginga um að ljúka málinu tel ég ekki ástæðu til að aðhafast frekar í tilefni af kvörtuninni að svo stöddu. Með hliðsjón af framangreindu lýk ég því meðferð minni á málinu með vísan til a-liðar 2. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997. Standist áform Sjúkratrygginga ekki og frekari tafir verða á meðferð málsins, getur þú leitað til mín að nýju með kvörtun þar að lútandi.