Félagsþjónusta sveitarfélaga. Tafir hjá stjórnvaldi á afgreiðslu máls. Aðgangur að gögnum og upplýsingar. Ekki ástæða til aðgerða.

(Mál nr. 63/2026)

A leitaði til umboðsmanns Alþingis og kvartaði yfir töfum á afgreiðslu kæru hans á ákvörðun sveitarfélags sem laut að synjun umsóknar um fjárhagsaðstoð. Einnig var kvartað yfir broti á upplýsingarétti og persónuverndarlögum í tengslum við beiðni A um aðgang að gögnum.

Þar sem málið er í farvegi hjá sveitarfélaginu taldi umboðsmaður ekki tilefni til að aðhafast frekar að svo stöddu. Þá taldi umboðsmaður, með hliðsjón af því hve skammur tími var liðinn frá því að beiðni A um aðgang að gögnum var komið á framfæri, ekki tilefni til að taka það atriði í kvörtuninni til frekari athugunar.

  

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 11. febrúar 2026.