Útlendingar. Ríkisborgararéttur. Kæruleið ekki tæmd.

(Mál nr. 41/2026)

A kvartaði yfir synjun Útlendingastofnunar á umsókn hennar um íslenskan ríkisborgararétt.

Þar sem ekki varð ráðið að ákvörðun stofnunarinnar hefði verið kærð til dómsmálaráðuneytisins taldi umboðsmaður sér ekki fært að taka kvörtunina til nánari athugunar að svo stöddu.

  

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 11. febrúar 2026.