Tafir hjá stjórnvaldi á afgreiðslu máls. Skýringar fengnar. Ekki ástæða til aðgerða.

(Mál nr. 57/2026)

Kvartað var yfir skorti á viðbrögðum dómsmálaráðherra og ráðuneytis við erindi sem laut að starfsaðferðum lögreglu í tengslum við rannsókn kæru vegna kynferðisbrots.

Í svari ráðuneytisins í tilefni af fyrirspurn umboðsmanns kom fram ráðuneytið hefði komið á framfæri afsökunarbeiðni vegna þess hversu lengi hefði dregist að bregðast við erindinu og það hygðist svara því eins fljótt og kostur væri. Taldi umboðsmaður því ekki ástæðu til að aðhafast frekar vegna málsins.

  

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 12. febrúar 2026.