Skattar og gjöld. Kæruleið ekki tæmd.

(Mál nr. 92/2026)

A kvartaði yfir synjun sveitarfélags á því að veittur yrði afsláttur af fasteignaskatti.

Þar sem A hafði ekki freistað þess að leita til innviðaráðuneytisins vegna málsins voru ekki skilyrði að lögum til að umboðsmaður fjallaði frekar um kvörtunina að svo stöddu.

   

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 12. febrúar 2026.