Vegabréfsáritun. Tafir hjá stjórnvaldi á afgreiðslu máls. Ekki ástæða til aðgerða.

(Mál nr. 42/2026)

Kvartað var yfir töfum á afgreiðslu umsóknar um vegabréfsáritun hjá Útlendingastofnun.  

Í ljósi þess að ekki varð annað ráðið en að málið væri í farvegi hjá stofnuninni og í virkri vinnslu taldi umboðsmaður ekki ástæðu til að aðhafast vegna málsins.

  

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 12. febrúar 2026.