Meðlag. Innheimta. Kæruleið ekki tæmd.

(Mál nr. 24/2026)

A kvartaði yfir misvísandi upplýsingum frá stjórnvöldum um þær leiðir sem stæðu til boða við fullnustu úrskurðar sýslumanns um meðlag.

Umboðsmaður benti á að A væri kleift að leggja fram umsókn til Tryggingastofnunar vegna mögulegrar millgöngu hennar við meðlagsgreiðslur og að ákvörðun stofnunarinnar væri kæranleg til úrskurðarnefndar velferðarmála. Þar til niðurstaða nefndarinnar lægi fyrir væru hins vegar ekki uppfyllt skilyrði til þess að kvörtunin yrði tekin til frekari athugunar.

   

Umboðsmaður lauk málinu með bréf 18. febrúar 2026.