Kvartað var yfir töfum á afgreiðslu dómsmálaráðuneytisins á erindum þar sem óskað var eftir endurskoðun á úrskurði ráðuneytisins.
Að undangenginni fyrirspurn umboðsmanns upplýsti ráðuneytið að erindunum hefði nú veriði svarað. Í ljósi þess taldi umboðsmaður ekki tilefni til að aðhafast frekar í tilefni af kvörtuninni.
Umboðsmaður lauk málinu með bréf 25. febrúar 2026.
Vísað er til kvörtunar þinnar 15. janúar sl. sem lýtur að töfum á afgreiðslu erinda þinna til dómsmálaráðuneytisins 22. og 23. september 2025. Var efni þeirra að óska eftir endurskoðun ráðuneytisins á úrskurði þess 11. sama mánaðar en með honum var staðfestur úrskurður sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu 5. september 2024 þar sem kveðið var á um inntak umgengni dóttur þinnar við föður.
Í tilefni af kvörtuninni var dómsmálaráðuneytinu ritað bréf 23. janúar sl. þar sem þess var óskað að ráðuneytið veitti umboðsmanni upplýsingar um hvað liði meðferð og afgreiðslu erinda þinna. Meðfylgjandi svör ráðuneytisins bárust 16. febrúar sl. þar sem fram kemur að erindum þínum hafi verið svarað 13. sama mánaðar.
Í ljósi þess að kvörtunin lýtur að töfum á afgreiðslu ráðuneytisins og þar sem þeirri afgreiðslu er nú lokið tel ég ekki tilefni til að aðhafast frekar í tilefni af kvörtuninni. Lýk ég því meðferð minni á málinu með vísan til a-liðar 2. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis.