A kvartaði yfir töfum á úthlutun félagslegs leiguhúsnæðis á grundvelli umsóknar hennar til Reykjavíkurborgar.
Umboðsmaður taldi að þótt ekki kæmi skýrt fram í svörum Reykjavíkurborgar hvenær nákvæmlega væri gert ráð fyrir að af úthlutun yrði fengi hún ekki annað séð en að málið væri í farvegi og að þær tafir sem væru á úthlutun félagslegs leiguhúsnæðis væru af almennum sökum en ekki bundnar við mál A sérstaklega. Í ljósi þess og að fengnum skýringum Reykjavíkurborgar taldi umboðsmaður ekki tilefni til að aðhafst frekar í tilefni af kvörtuninni.
Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 25. febrúar 2026.