Menntamál. Grunnskólar. Ekki aðild.

(Mál nr. 571/2025 og 572/2025)

Samtökin A kvörtuðu annars vegar yfir samningi sveitarfélags við tilgreind samtök um fræðslu í grunnskólum sveitarfélagsins og hins vegar yfir efni tilgreindrar kennslubókar og viðbrögðum mennta- og barnamálaráðuneytisins við aðfinnslum þeirra af því tilefni.  

Umboðsmaður taldi að ekki yrði séð að efni kvartananna varðaði samtökin A umfram aðra. Af þeim sökum taldi umboðsmaður ekki uppfyllt skilyrði til að fjallað yrði um kvartanirnar.

   

Umboðsmaður lauk málunum með bréfi 25. febrúar 2026.