A kvartaði annars vegar yfir því að utanríkisráðuneytið hefði ekki svaraði erindi hans sem og yfir breytingum á alþjóðaheilbrigðisreglugerðinni. Hins vegar laut kvörtunin að töfum landlæknis á afgreiðslu beiðni A um afhendingu gagna.
Þar sem erindi A til utanríkisráðuneytisins hafði ekki verið ítrekað taldi umboðsmaður ekki tilefni til að aðhafast frekar að svo stöddu. Þá varð ekki séð að þær breytingar sem gerðar hefðu verið á alþjóðaheilbrigðisreglugerðinni vörðuðu hagsmuni A með slíkum hætti að uppfyllt væru skilyrði til þess að erindi hans yrði að því leyti tekið til frekari athugunar á grundvelli kvörtunar.
Hvað varðaði tafir á afgreiðslu gagnabeiðni A taldi umboðsmaður að ekki hefði enn orðið slíkur dráttur á afgreiðslu hennar að tilefni væri til að aðhafast vegna kvörtunarinnar að svo stöddu.
Umboðsmaður lauk málinu með bréf 25. febrúar 2026.