A kvartaði yfir synjun stjórnvalda á umsókn um dvalarleyfi. Þá fylgdi kvörtuninni afrit af ákvörðunum Vinnumálastofnunar um að synja umsókn fyrirtækis, þar sem A mun hafa starfað, um atvinnuleyfi til handa honum.
Þar sem umsókn A um dvalarleyfi hafði verið leidd til lykta með úrskurði kærunefndar útlendingamála í maí 2024 voru ekki skilyrði til þess fyrir umboðsmann að fjalla nánar um málið, sökum þess að hún barst að liðnum þeim ársfresti sem mælt er fyrir um í lögum um störf umboðsmanns. Þá voru ekki skilyrði til að fjalla um synjun Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleyfi þar sem hún hafði ekki verið borin undir æðra stjórnvald.
Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 27. febrúar 2026.