A kvartaði yfir vinnslu sveitarfélagsins X, mennta- og barnamálaráðuneytisins og Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála í málum barna hennar og þeirri þjónustu sem þeim hafði verið veitt.
Eftir að hafa kynnt sér kvörtunina taldi umboðsmaður ekki efni til að gera athugasemdir við svör mennta- og barnamálaráðuneytisins eða þær leiðbeiningar sem A voru þar veittar. Þá taldi umboðsmaður að frekari athugun hennar á málinu myndu ekki leiða til þess að hún hefði forsendur til að gera athugasemdir við niðurstöðu Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála.
Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 27. febrúar 2026.