Tafir hjá stjórnvaldi á afgreiðslu máls. Ekki ástæða til aðgerða. Skýringar fengnar.

(Mál nr. 103/2026)

Félagið A kvartaði yfir töfum á afgreiðslu stjórnsýslukæru þess frá júlí 2024 af hálfu atvinnuvegaráðuneytisins.

Í svörum ráðuneytisins við fyrirspurn umboðsmanns kom fram að stefnt væri að því að ljúka málinu á næstunni. Taldi umboðsmaður því ekki ástæðu til að taka kvörtunina til frekari athugunar.

  

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 9. mars 2026. 

  

  

Vísað er til kvörtunar A ehf. yfir töfum á afgreiðslu atvinnuvegaráðuneytisins á kæru félagsins frá 12. júlí 2024. Lýtur kæran að ákvörðun sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu um að synja félaginu um rekstrarleyfi vegna gististaðar í flokki II.

Í tilefni af kvörtuninni var atvinnuvegaráðuneytinu ritað bréf 17. febrúar sl. þar sem þess var óskað að upplýst yrði um hvað liði meðferð og afgreiðslu málsins og að veittar yrðu upplýsingar um framvindu málsins. Í svari ráðuneytisins 2. mars sl. kemur fram að álag í málaflokknum hafi aukist undanfarið en að stefnt sé að því að ljúka öllum kærumálum innan tólf mánaða. Mál félagsins sé í úrskurðarferli og að stefnt sé að því að úrskurða í málinu fyrir lok marsmánaðar.

Þar sem kvörtunin lýtur að töfum og í ljósi áforma ráðuneytisins um afgreiðslu málsins tel ég ekki ástæðu til að aðhafast frekar vegna málsins, sbr. a-liður 2. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis. Læt ég því athugun minni vegna kvörtunarinnar lokið. Standist áform ráðuneytisins ekki og frekari tafir verða á meðferð málsins getur félagið leitað til mín á nýjan leik með kvörtun, telji það tilefni til.