Tafir hjá stjórnvaldi á afgreiðslu máls. Leiðrétting.

(Mál nr. 53/2026)

A kvartaði yfir töfum á afgreiðslu Ferðamálastofu á beiðni um niðurfellingu dagsekta.

Í svari Ferðamálastofu við fyrirspurn umboðsmanns vegna málsins kom fram að beiðnin hefði nú verið afgreidd. Af þeim sökum taldi umboðsmaður ekki ástæðu til að aðhafast frekar vegna kvörtunarinnar en áréttaði heimild til að kæra ákvörðun Ferðamálastofu til atvinnuvegaráðuneytisins.

   

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 10. mars 2026.

  

   

Vísað er til kvörtunar einkahlutafélagsins A 16. janúar sl. yfir því að erindum félagsins til Ferðamálastofu, í tengslum við álagningu dagsekta á árinu 2025, hafi ekki verið svarað. Nánar tiltekið var þess óskað með beiðni frá 4. desember 2025, sem ítrekuð var 9. janúar sl., að álagning sektanna yrði endurskoðuð.

Af framangreindu tilefni var Ferðamálastofu ritað bréf 9. febrúar sl. þar sem þess var óskað að veittar yrðu upplýsingar um hvort erindin væru til meðferðar og þá hvað liði afgreiðslu þeirra. Í meðfylgjandi svari Ferðamálastofu, sem barst umboðsmanni 2. mars sl., kemur fram að erindi A hafi verið afgreitt 27. febrúar sl. Niðurstaða stofnunarinnar var sú að hafna bæri beiðni félagsins um niðurfellingu dagsekta.

Þar sem kvörtunin lýtur að töfum á afgreiðslu erindis sem nú hefur verið til lykta leitt er ekki tilefni til að aðhafast frekar vegna hennar. Lýk ég því umfjöllun minni um kvörtunina, sbr. a-lið 2. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis. Ég árétta þó það sem fram kemur í bréfi Ferðamálastofu til þín 27. febrúar sl. um að ákvörðunina megi kæra til atvinnuvegaráðuneytisins innan þriggja mánaða frá dagsetningu bréfsins. Fari svo að félagið kæri ákvörðunina til ráðuneytisins er því velkomið, að fenginni niðurstöðu þess, að leita til mín að nýju með kvörtun, sé talið tilefni til.