A kvartaði yfir töfum hjá embætti ríkislögmanns á svörum við bótakröfu vegna aðgerða lögreglu.
Af gögnum málsins mátti ráða að ástæður tafanna væru almennar og ekki bundnar við mál A sérstaklega. Þá lá einnig fyrir að stjórnvöld höfðu upplýst um framgang málsins og að niðurstöðu væri að vænta innan skamms. Taldi umboðsmaður því ekki tilefni til að aðhafast í tilefni af kvörtuninni að svo stöddu.
Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 13. mars 2026.