Útlendingamál. Endurtekin umsókn. Ársfrestur. Kæruleið ekki tæmd.

(Mál nr. 189/2026)

A kvartaði yfir ákvörðun Útlendingastofnunar þar sem endurtekinni umsókn A um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi var synjað.

Ákvörðunin hafði verið kærð til kærunefndar útlendingamála og var málið til meðferðar hjá kærunefndinni. Voru því ekki uppfyllt skilyrði fyrir því að kvörtunin yrði tekin til meðferðar. Hvað snerti fyrri mál A hjá Útlendingastofnun og kærunefnd útlendingamála lá fyrir að ársfrestur vegna þeirra var liðinn. Lauk umboðsmaður því athugun sinni á kvörtuninni en benti á að þegar úrskurður kærunefndar vegna endurtekinnar umsóknar lægi fyrir væri A fært að kvarta yfir honum væri hún ósátt með niðurstöðuna.

   

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 16. mars 2026.