Stjórnsýslukæra. Tafir hjá stjórnvaldi á afgreiðslu máls. Ekki ástæða til aðgerða. Skýringar fengnar.

(Mál nr. 165/2026)

A ehf. kvartaði til umboðsmanns yfir töfum á afgreiðslu stjórnsýslukæru hjá innviðaráðuneytinu.

Í málinu lá fyrir að ráðuneytið hafði upplýst um ástæður tafanna og gert grein fyrir því hvenær áætlað var að ljúka afgreiðslu málsins. Taldi umboðsmaður því ekki tilefni til að aðhafast vegna kvörtunarinnar að svo stöddu.  

  

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 16. mars 2026.