Sameining sveitarfélaga. Sérstakt hæfi. Stjórnsýslukæra. Ársfrestur. Frávísun.

(Mál nr. 522/2025)

A kvartaði yfir frávísun innviðaráðuneytisins á kæru hans sem laut að hæfi hreppsnefndarmanna í Skorradalshreppi og ákvörðun hreppsnefndar um að hefja formlegar viðræður við Borgarbyggð um sameiningu sveitarfélagaganna.

Umboðsmaður vísaði til þess að kæruheimild sveitarstjórnarlaga væri bundin við ákvarðanir um rétt eða skyldu manna, það er svokallaðar stjórnvaldsákvarðanir. Þar sem ekki varð séð að í málinu lægju fyrir stjórnvaldsákvarðanir sem sætt gætu kæru til ráðuneytisins taldi umboðsmaður ekki efni til að gera athugasemdir við frávísun þess á kæru A.

   

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 16. mars 2026.