Sveitarfélög. Kosningar. Breyting á kjörskrá. Ekki ástæða til aðgerða.

(Mál nr. 521/2025)

A kvartaði yfir úrskurði innviðaráðuneytisins þar sem staðfestar voru ákvarðanir Þjóðskrár Íslands um að synja henni um skráningu á kjörskrá við íbúakosningar um sameiningu Skorradalshrepps og Borgarbyggðar. Var niðustaða ráðuneytisins á því reist að A uppfyllti ekki skilyrði um að vera með skráð lögheimili í öðru hvoru sveitarfélaginu.

Umboðsmaður taldi það leiða af lögum að réttur til þáttöku í kosningunum væri bundinn við þá sem uppfylltu skilyrði sveitarstjórnarlaga þar um, þar á meðal um skráð lögheimili í viðkomandi sveitarfélagi. Þar sem óumdeilt var að A hefði ekki verið með skráð lögheimili í öðru hvoru sveitarfélaginu taldi umboðsmaður ekki efni til að gera athugasemdir við niðurstöðu ráðuneytisins að þessu leyti. Í ljósi þessa taldi umboðsmaður heldur ekki ástæðu til að gera athugasemdir við að ráðuneytið hafi ekki fallist á kröfu um ógildingu íbúakosninganna á grundvelli þess að A hafi ranglega verið synjað um skráningu á kjörskrá.

   

Umboðsmaður lauk málinu með bréf 16. mars 2026.