Skattar og gjöld. Kæruleið ekki tæmd.

(Mál nr. 178/2026)

A kvartaði yfir álagningu kílómetragjalds og framkvæmd Skattsins á lögum um kílómetagjald á ökutæki.

Umboðsmaður benti á að álagning kílómetragjalds er kæranleg til ríkisskattstjóra og í framhaldinu mætti kæra úrskurð ríkisskattstjóra til yfirskattanefndar. Ekki væru skilyrði til að kvarta til umboðsmanns vegna álagningar kílómetragjalds fyrr en málið hefði verið lagt í þann kærufarveg. 

   

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 19. mars 2026.