A kvartaði annars vegar yfir málsmeðferð lögreglu og barnaverndar og hins vegar yfir úrskurði sýslumanns um heimild til utanfarar með barn hennar.
Af gögnum málsins varð ráðið að þau atvik, sem tengdust málsmeðferð lögreglu og barnaverndar, hefðu átt sér stað utan þess ársfrests, sem mælt er fyrir um í lögum nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis. Af þeim sökum voru ekki uppfyllt skilyrði til að kvörtun af slíku tilefni væri tekin til meðferðar.
Þar sem úrskurður sýslumanns, sem kvörtun A beindist að, hafði ekki verið kærður til dómsmálaráðuneytisins voru ekki heldur uppfyllt skilyrði til að sú kvörtun yrði tekin til meðferðar.
Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 19. mars 2026.