Erlendir ríkisborgarar. Kæruleið ekki tæmd.

(Mál nr. 78/2026)

A kvartaði yfir tilgreindum atriðum í málsmeðferð Útlendingstofnunar. Ekki varð annað ráðið af kvörtuninni en að hún lyti að almennri málsmeðferð og verklagi stofnunarinnar.  

Umboðsmaður taldi rétt, að gættri yfirstjórn dómsmálaráðherra á þessu málefnasviði, að A bæri aðfinnslur sínar upp við dómsmálaráðuneytið áður en leitað væri til umboðsmanns með kvörtun af sama tilefni.

    

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 20. mars 2026.