Lögreglu- og sakamál. Tafir hjá stjórnvöldum á afgreiðslu máls. Svör við erindum. Börn. Kæruleið ekki tæmd. Ekki ástæða til aðgerða.

(Mál nr. 180/2026 - 181/2026 -184/2026 - 186/2026)

A kvartaði yfir töfum á því að dómsmála- og forsætisráðuneyti brygðust við erindum hans. Umboðsmaður taldi rétt að hann ítrekaði erindi sín áður en kvartað væri til umboðsmann í tilefni af töfum. 

A kvartaði jafnframt yfir framgöngu starfsmanns barnaverndaryfirvalda en umboðsmaður taldi rétt að áður en kvörtun af slíku tilefni gæti komið til skoðunar bæri A aðfinnslur sínar upp við Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála.

Þá kvartaði A jafnframt yfir viðbrögðum ríkissaksóknara við tveimur erindum hans. Að því gættu hvernig erindin voru sett fram svo og því að ríkissaksóknari hafði staðfest móttöku þeirra og vistun taldi umboðsmaður ekki tilefni til að gera athugasemdir við málsmeðferðina.

Að síðustu kvartaði A yfir framgöngu lögreglunnar. Taldi umboðsmaður að eftir eðli aðfinnslna A væri rétt að þær væru bornar undir ríkissaksóknara og/eða nefnd um eftirlit með lögreglu áður en kvartað væri til umboðsmanns í tilefni þeirra.

   

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 24. mars 2026.