A kvartaði annars vegar yfir því að innviðaráðuneytið hefði ekki svarað fyrirspurn hans um skuldbindandi gildi íbúakosninga sem fram færu að frumkvæði íbúa sveitarfélaga. Hins vegar laut kvörtunin að áliti ráðuneytisins þar sem ákvörðun sveitarstjórnar Skorradalshrepps, um að heimila að fram færi undirskriftarsöfnun fyrir almenna atkvæðagreiðslu um ákvörðun hennar um að hefja formlegar sameiningarviðræður við Borgarbyggð, var felld úr gildi.
Umboðsmaður rakti lagagrundvöll málsins og taldi sig hvorki hafa forsendur til að gera athugasemdir við þá afstöðu innviðaráðuneytisins að ákvörðun sveitarstjórnar hefði ekki verið í samræmi við sveitarstjórnarlög né ákvörðun þess um að fella ákvörðunina úr gildi. Þá fékk umboðsmaður ekki annað séð en að fyrirspurn A um skuldbindandi gildi íbúakosninga hefði verið svarað með áliti ráðuneytisins.
Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 24. mars 2025.