A kvartaði yfir afstöðu mennta- og barnamálaráðuneytisins til kvörtunar sem laut að aðstæðum í tilteknum grunnskóla.
Umboðsmaður taldi sig ekki hafa forsendur til að aðhafast frekar vegna málsins, meðal annars með vísan til þess að ráðuneytið hefði að meginstefnu til tekið undir athugasemdir A og einnig gripið til aðgerða á grundvelli yfirstjórnunar- og eftirlitsheimilda sinna vegna þess.
Að því marki sem kvörtunin beindist að Reykjavíkurborg og varðaði atriði sem ekki heyra undir mennta- og barnamálaráðuneytið varð ekki ráðið að A hefði komið athugasemdum sínum á framfæri við innviðaráðuneytið og var honum leiðbeint um það.
Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 31. mars 2025.