Stjórnsýsluviðurlög og þvingunarúrræði. Tafir hjá stjórnvaldi á afgreiðslu máls. Leiðrétting.

(Mál nr. 174/2026)

A hf. kvartaði yfir ákvörðun ríkisskattstjóra um álagningu dagsekta þar sem félagið hafði ekki skráð framkvæmdastjóra. Þá laut kvörtunin að töfum á afgreiðslu Skattsins á beiðni félagsins um niðurfellingu sektanna eftir að þær voru stöðvaðar.

Þar sem A hf. hafði ekki kært ákvörðunina um álagningu sektanna innan kærufrests voru ekki uppfyllt skilyrði til þess að umboðsmaður gæti fjallað nánari um málið að því leyti. Þá kom fram í svörum Skattsins vegna fyrirspurnar umboðsmanns um hvað liði meðferð og afgreiðslu á beiðni félagsins um niðurfellingu sektanna að ákvörðun hefði verið tekin í málinu og félaginu leiðbeint um kæruheimild. Taldi umboðsmaður því ekki tilefni til frekari athugunar á þeim þætti málsins.

  

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 9. apríl 2026.