Skipulags- og byggingarmál. Kæruleið ekki tæmd.

(Mál nr. 232/2026)

A kvartaði yfir afgreiðslu Hafnarfjarðarbæjar á erindi vegna óleyfisframkvæmda og frágangs á lóð fasteignar hans.

Þar sem ekki varð séð að ákvörðun byggingarfulltrúa Hafnarfjarðarbæjar í máli A hefði verið kærð til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála voru ekki uppfyllt skilyrði til að umboðsmaður gæti tekið kvörtunina til skoðunar.

   

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 10. apríl 2026.