Félagsþjónusta sveitarfélaga. Fjárhagsaðstoð. Kæruleið ekki tæmd

(Mál nr. 235/2026)

A kvartaði yfir synjun á fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg.

Þar sem A hafði ekki borið ákvörðun áfrýjunarnefndar velferðarráðs Reykjavíkurborgar undir úrskurðarnefnd velferðarmála voru ekki uppfyllt skilyrði til þess að umboðsmaður fjallaði um kvörtunina.  

   

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 10. apríl 2026.