Félagsþjónusta sveitarfélaga. Tafir hjá stjórnvaldi á afgreiðslu máls. Ekki ástæða til aðgerða.

(Mál nr. 256/2026)

A kvartaði yfir töfum á úthlutun félagslegs leiguhúsnæðis á grundvelli umsóknar hennar til sveitarfélagsins X.

Þar sem fyrir lá að umsóknin hefði verið sett í forgang af hálfu sveitarfélagsins og A hefði nýlega fengið úthlutað félagslegu leiguhúsnæði, sem hún hefði hafnað, taldi umboðsmaður ekki tilefni til að beina fyrirspurn til þess um hvað liði meðferð og afgreiðslu umsóknarinnar að svo stöddu.

  

Umboðsmaður lauk málinu með bréf 22. apríl 2026.