A kvartaði yfir ákvörðun dómsmálaráðuneytisins um að synja beiðni um frestun réttaráhrifa á ákvörðun sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu.
Þar sem fram kom að beiðni A um endurupptöku á ákvörðun ráðuneytisins var enn til meðferðar voru ekki uppfyllt skilyrði fyrir því að kvörtun A væri tekin til frekari athugunar að svo stöddu.
Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 27. apríl 2026.