A kvartaði yfir því að ríkissaksóknari hefði staðfest ákvörðun lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu um að hætta rannsókn sakamáls, sem sprottið var af kæru A á ætluðum þjófnaði á fjármunum í eigu barns hans. Laut kvörtunin einkum að því að óyggjandi sannanir lægju fyrir um þjófnaðinn.
Eftir að hafa kynnt sér ákvörðun ríkissaksóknara og gögn málsins taldi umboðsmaður ekki ástæðu til að gera athugasemdir við niðurstöðu saksóknara. Horfði umboðsmaður meðal annars til þess svigrúms, sem ríkissaksóknari nyti til mats.
Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 12. maí 2026.