Félagsþjónusta sveitarfélaga. Húsnæðismál. Félagslegar íbúðir. Tafir hjá stjórnvaldi á afgreiðslu máls. Ekki ástæða til aðgerða.

(Mál nr. 229/2026)

A kvartaði yfir töfum á afgreiðslu umsóknar um félagslegt leiguhúsnæði á vegum Reykjavíkurborgar.

Samkvæmt svörum borgarinnar við fyrirspurn umboðsmanns var málið í farvegi hjá borginni. Að því virtu og í ljósi þeirra skýringa sem umboðsmaður hafði fengið á þeirri stöðu sem er uppi í málaflokknum taldi hún ekki ástæðu til að aðhafast frekar í málinu.

  

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 20. maí 2026.