A kvartaði yfir frávísun úrskurðarnefndar velferðarmála á kæru og stjórnsýslu Tryggingastofnunar vegna umsóknar um að stofnunin hefði milligöngu um meðlagsgreiðslu A til handa. Þá laut kvörtunin jafnframt að málsmeðferð og málshraða sýslumanns í tengslum við beiðnir A um skilnaðarleyfi, fjárnám og frekari innheimtuaðgerðir gagnvart barnsföður hennar.
Þar sem ekki varð séð að umsókn A hefði borist Tryggingastofnun eða að mál væri þar til meðferðar vegna hennar taldi umboðsmaður ekki efni til að gera athugasemdir við niðurstöðu úrskurðarnefndarinnar um að vísa kærunni frá á þeim grundvelli að ekki lægi fyrir kæranleg ákvörðun í málinu.
Umboðsmaður taldi jafnframt að ekki hefði enn orðið slíkur dráttur á beiðni A um skilnaðarleyfi að tilefni væri til að beina fyrirspurn til sýslumanns um hvaða liði meðferð og afgreiðslu hennar. Þá varð ekki ráðið af kvörtuninni að erindi A um nánar tilteknar innheimtuaðgerðir hefði verið ítrekað. Hvað snerti beiðni A um fjárnám vísaði umboðsmaður til þess að í lögum væri gert ráð fyrir því að leitað yrði úrlausnar dómstóla vegna ágreinings í tengslum við aðfarargerðir og framkvæmd þeirra.
Umboðsmaður lauk málinu með bréf 22. maí 2026.