A kvartaði yfir töfum á afgreiðslu kærunefndar útlendingamála á stjórnsýslukæru.
Í svari kærunefndarinnar við fyrirspurn umboðsmanns kom fram að A hefði verið boðaður til viðtals sem hann hefði mætt til ásamt talsmanni sínum. Hann hefði verið upplýstur um að málinu yrði lokið á næstu vikum. Taldi umboðsmaður því ekki ástæðu til að aðhafast frekar í tilefni af kvörtuninni.
Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 22. maí 2026.