Lífeyrismál. Utan valdsviðs – einkaréttarlegt.

(Mál nr. 331/2026)

A kvartaði yfir atriðum er lutu að ákvörðun lífeyrissjóðs um að skerða lífeyrisgreiðslur til hennar.

Þar sem starfsemi lífeyrissjóða telst almennt ekki hluti af stjórnsýslu ríkis og sveitarfélaga og þar sem ekki varð séð að kvörtunin lyti að tilviki þar sem einkaaðila kynni að hafa verið fengið opinbert vald til þess að taka ákvarðanir um rétt eða skyldu manna, féll utan starfssviðs umboðsmanns að fjalla um kvörtunina.

  

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 27. maí 2026.