A kvartaði yfir úrskurði úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Með úrskurðinum var kæru A vegna breytingar á deiliskipulagi vísað frá þar sem kæran barst utan kærufrests.
Með vísan til þess að kæran barst rúmum sex mánuðum frá birtingu deiliskipulagsins í Stjórnartíðindum, og að virtum gögnum málsins að öðru leyti, taldi umboðsmaður ekki tilefni til að gera athugasemd við niðurstöðu úrskurðarnefndarinnar.
Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 27. maí 2026.