A kvartaði yfir banni við tölvunotkun í fangelsunum Litla-Hrauni og Hólmsheiði.
Ekki varð séð að athugasemdir A hefðu verið bornar upp við hlutaðeigandi stjórnvöld, þ.e. Fangelsismálastofnun og dómsmálaráðuneytið. Því voru ekki uppfyllt skilyrði til að umboðsmaður tæki kvörtunina til meðferðar að svo stöddu.
Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 1. júní 2026.