A kvartaði yfir álagningu gjalds í tilefni þess að bifreið var stöðvuð í gjaldskyldu bifreiðastæði. Studdist kvörtunin við að bifreiðin hefði verið stöðvuð skemur en þrjár mínútur og þar að auki hefði álagningin strítt gegn meðalhófsreglu.
Umboðsmaður taldi að samkvæmt umferðarlögum þyrfti stöðvun bifreiðar í gjaldskyldu bifreiðastæði ekki að standa lengur en í þrjár mínútur þannig að gjaldskylda stofnaðist. Þá taldi umboðsmaður meðalhófsreglu ekki hafa verið brotna með álagningunni.
Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 3. júní 2026.